23/197

Gleðilegtsumar kæru lesendur! Nú er kominn tími á sumarlegri uppskriftir á Eldhúsatlasnum og ég ætla að byrja á einni frá litla konungsdæminu Tonga í Kyrrahafi. Otai er frískandi og sumarlegur vatnsmelónudrykkur með kókosmjólk, ananas og límónusafa. Það er víst ekki þverfótað fyrir vatnsmelónum á þessari paradísareyju og íbúarnir drekka Otai til að svala þorstanum í steikjandi sumarhitanum.
Ég gerði ekki alveg hefðbundna uppskrift að Otai vegna þess að í Tonga væru ávextirnir stappaðir og blandað saman við kókosmjólk, limesafa og vatn. Ég set hinsvegar allt í blandara til að það sé auðveldlega hægt að drekka drykkinn með röri.
Það er hægt að gera drykkinn enn hollari og nota kókosvatn í stað mjólkur. Það er líka hægt að breyta Otai í rommkokteil og þá er gott að hafa aðeins meiri ananas, kókosmjólk og hunang eða sykur.


Innihaldsefni
- Hálf vatnsmelóna (1000 gr. án hýðis)
- 200 gr. ferskur ananas
- ½ dl af feitri kókosmjólk eða kókosrjóma
- Safi úr hálfri límón
- Örlítið hunang
- Svolítið kalt vatn
- Klakar
Uppskriftin gefur 1,2 L