Svartbaunaskál

SVARTBAUNA

skál

SVARTBAUNA

skál

Image
Image

SVARTBAUNA

skál

Ég tók eftir því um daginn að uppskriftin sem er sjaldnast skoðuð á Eldhúsatlasnum er sú sem mér finnst vera einna best. Það er einn af mínum uppáhaldsréttum, Frijoles negros frá Kúbu. Uppskriftin birtist í Vikunni um daginn og ég fékk snilldarljósmyndara í heimsókn sem tók þessa fínu mynd af réttinum. Þannig að ég ætla að nota tækifærið og birta þessa góðu uppskrift aftur.

Frijoles negros er klassískur kúbanskur réttur úr svörtum baunum.Alveg ótrúlega djúsí og góður vegan réttur. Það fer dágóður tími í eldamennskuna en mér finnst það vel þess virði. Svartar baunir eru meinhollar og þeir sem vilja fara alla leið í hollustunni geta borið réttinn fram með hýðishrísgrjónum og lífrænum nachosflögum.



Image

Frijoles negros

 

  • 4 ½ bollar vatn
  • 1 ¼ bolli svartar baunir
  • 2 grænar paprikur
  • Stór laukur
  • 2 eða fleiri hvítlauksrif
  • 1 tsk cumin
  • 1 tsk óreganó
  • 1½ msk rauðvínsedik
  • ¾ bolli rauðvín
  • 1 tsk sykur
  • 1 lárviðarlauf
  • 2 msk ólífuolía
  • Salt og svartur pipar eftir smekk


Skálin


  • Hrísgrjón & baunir

    Setjið hrísgrjón í botninn á skálinni og baunaréttinn yfir.

  • Laukur

    Fínsaxið lauk og setjið í miðjuna.

  • Kóríander

    Saxið kóríander og stráið yfir réttinn.

  • Grænn chilipipar

    Skerið chilipipar í þunnar sneiðar og setjið í miðjuna.

  • Lime

    Kreistið limesafa yfir allan réttinn og setjið auka limesneiðar í skálina.

  • Avocado

    Skerið avocado í sneiðar og setjið í skálina.

  • Nachos!

    Berið fram með fullt af nachos flögum.



Image

Leiðbeiningar


1.
Leggið baunirnar í bleyti yfir nótt eða samkvæmt leiðbeiningum á pakka.

2.
Hellið vatninu af og setjið baunirnar í pott með  4 ½ bolla af nýju vatni og 1 msk af ólífuolíu. 

3.
Látið suðuna koma upp. Lækkið hitann og setjið lokið yfir og látið baunirnar sjóða þar til þær verða meyrar eða í um það bil klukkustund. Það er mikilvægt að salta baunirnar ekki á þessu stigi og það má ekki hella vatninu af baununum.

4.
Saxið niður laukinn og paprikuna og steikið í ólífuolíu.

5.
Bætið við hvítlauk, salti og pipar eftir smekk og steikið í 1-2 mínútur í viðbót.

6.
Hellið baununum (með suðuvatninu) út á pönnuna og bætið við rauðvíni, ediki, lárviðarlaufi, cumini og oregano. Setjið lok yfir og leyfið réttinum að krauma í 20 mínútur.

7.
Fjarlægið lárviðarlaufið. Takið ½ bolla af baunum og búið til þykkt mauk og bætið aftur út í réttinn. Þá verður hann þykkari og betri. (Til dæmis með töfrasprota eða mortéli).

8.
Bætið við 1-2 tsk. af sykri og meira salti og pipar eftir smekk.

9.
Takið pönnuna af hellunni, dreifið einni msk. af ólívuolíu yfir réttinn, setjið lokið á og látið hana standa í 10 mínútur.

Berið fram með hrísgrjónum, fullt af limesafa, fersku kóríander og söxuðum lauk!

Fyrir ca. 4 - 5