eldhúsatlasinner vaknaður af löngum dvala! Fyrsti viðkomustaðurinn á þessu nýja ferðalagi er Víetnam. Það er um auðugan garð að gresja í grænmetismatarmenningu Víetnam en mig langaði samt að prófa að gera vegan útgáfu af klassískum kjötrétti. Pho, borið fram fuh er fersk og ilmandi núðlusúpa krydduð með brenndu engiferi, stjörnuanís, negul og kanil, borin fram með ferskum kryddjurtum, baunaspírum, chili og sósum.
Hefðbundið pho er með soði úr nautabeinum sem fær að malla klukkustundunum saman. Vegan pho er fínlegra og ferskara en galdurinn liggur líka í soðinu. Ekki sleppa því að brenna engiferið og laukinn, það gefur soðinu dásamlega dýpt.
Í Víetnam er pho víst hefðbundinn morgunmatur en hér er þetta frábær matarboðsréttur. Súpan er borin fram í skál með núðlum, tófú og baunaspírum og svo á hver og einn að bragðbæta sína súpu með kryddjurtum, límónusafa, chili, baunaspírum, sriracha og hoisin sósu.
Ég ætla ekki að ljúga að ykkur, þetta er djöfulsins vinna en vel þess virði. Þegar ég legg í soðgerðina þá geri ég mikið magn í einu og frysti í litlum skömmtum. Þá er ég enga stund að henda í pho á venjulegu kvöldi. Það er þó hægt að stytta sér leið og kaupa alveg prýðilegt Pho soð í fernu í Veganbúðinni.
Notið þessa uppskrift sem grunn og bætið við hverju því sem hugurinn girnist og kryddið soðið eftir ykkar eigin smekk.
Pho
- 1 ½ líter af vegan pho soði. Uppskrift að heimagerðu soði er aðeins neðar á síðunni en það er líka hægt að kaupa prýðilegt pho soð í fernu í Veganbúðinni.
- 1 tsk sjávarsalt
- 1-2 tsk sykur
- Tófúkubbur skorinn í litla teninga
- Ca. 250 gr hrísgrjónanúðlur (um hálfur pakki)
- 5 dl af söxuðu fersku kóríander, basil og vorlauk
- Bok choi
- 2-3 dl af mungbaunaspírum
- Límónubátar
- Grænn chilipipar í þunnum sneiðum
- Sriracha sósa (eða önnur chili-hvítlaukssósa)
- Hoisin sósa
- Rifin engiferrót
- Vegan fiskisósa eða sojasósa eftir smekk
Soð
- 4 lítrar af köldu vatni
- 3 msk olía
- 1 stór laukur, skorinn í fernt
- 10 cm engiferrót, afhýdd
- 2 púrrulaukar, gróft skornir
- 3 stórar gulrætu, skornar í stóra bita
- 400 gr kínahreðka (daikon)
- 10 afhýdd hvítlauksrif
- 1 stilkur sítrónugras, kraminn og gróflega skorinn
- 3 stjörnuanís
- 3 negulnaglar
- 2 kanilstangir
- ½ tsk fennelfræ
- 7 þurrkaðir shiitake sveppir
- Rífleg handfylli af kóríanderstilkum
Matarsóun
Soð úr afgöngum
Það þarf ekki að kaupa nýtt grænmeti í pho soðið. Það er hægt að nota afskurð af grænmeti og nýta þannig allt!
Notaðu grænmetið sem þú átt
Það þarf ekki að fara 100% eftir uppskriftinni. Áttu myntu en ekki basil? Grænkál en ekki bok choi? Notaðu það! Ég lofa að súpan verður alveg jafn góð.
Kóríander er gull
Margir nota bara laufin en stilkarnir eru alveg jafn bragðgóðir. Skerið þá bara mjög smátt ef þeir eru grófir. Svo er tilvalið að nota þá heila í soð eins og í þessari uppskrift.