Marokkóskt kjúklingabaunasalat

KJÚKLINGABAUNASALAT

Frá Marokkó

KJÚKLINGABAUNA SALAT

Frá Marokkó

15/197


Image

égfór til Marrakesh í febrúar og fékk aðeins að kynnast marokkóskri matarmenningu. Réttirnir voru vel kryddaðir en samt bragðmildir. Skál af sterkri chilisósu (Harissa) fylgdi þó alltaf með.

Það var alls staðar ágætis úrval af grænmetisréttum og þar voru kjúklingabaunir oftar en ekki í aðalhlutverki. Hér er uppskrift að afar einföldu marokkósku kjúklingabaunasalati. Svona salöt eru venjulega höfð í forrétt en mér þykir það passa vel sem léttur hádegisverður. Þá er til dæmis gott að bera það fram með brauði og harissa eða annari chilisósu.



Image

Innihaldsefni

 

  • 7 dl soðnar kjúklingabaunir
  • Lítill rauðlaukur
  • 4 hvítlauksgeirar
  • Safi úr einni sítrónu
  • 4 msk ólífuolía
  • 1 - 2 tsk cuminduft
  • 1-2 tsk paprikuduft
  • Svolítill cayenne pipar og túrmerik
  • Salt og pipar eftir smekk
  • 1 dl saxað kóríander
  • 1 dl söxuð steinselja


Image

Leiðbeiningar

 


1.
Sjóðið kjúklingabaunirnar samkvæmt leiðbeiningum á pakka (ef þið notið kjúklingabaunir úr dós er nauðsynlegt að hita þær upp).

2.
Blandið saman ólífuolíu, sítrónusafa, salti, pipar og kryddum og merjið hvítlaukinn út í olíuna.

3.
Skerið laukinn í þunnar sneiðar.

4.
Saxið steinselju og kóríander fínt.

5.
Setjið kjúklingabaunirnar (þær eiga að vera heitar) og laukinn í skál.

6.
Hellið kryddolíunni yfir og blandið vel saman við baunirnar.

7.
Bætið kryddjurtunum saman við og smakkið til með salti, pipar og sítrónusafa.

 

Fyrir 2-3 sem léttur hádegisverður.

Gott að bera fram með brauði, harissa, eggjum eða fetaosti. Salatið er einnig gott sem meðlæti með ýmis konar mat.