LUBYI MSALLAT
Frá Líbanon8/197

HÉRer uppskrift að einföldu líbönsku augnbaunasalati. Ég notaði augnbaunir úr dós og það heppnaðist mjög vel. Það er frekar mikið magn af ólívuolíu í uppskriftinni og það er allt í lagi að minnka það aðeins. Salatið er gott eitt og sér og sem meðlæti með ýmis konar mat. Það er til dæmis hægt að setja það í pítubrauð með tómötum, tahini og fetaosti.


Innihaldsefni
- 2 dósir af augnbaunum
- 1 eða fleiri hvítlauksgeiri
- Safi úr hálfri sítrónu
- 2-3 skallottulaukar (eða lítill laukur)
- 4 msk af saxaðri steinselju
- 1-2 tsk cuminduft
- 1 tsk salt (eða meira eftir smekk)
- 100 ml af ólífuolíu