2/197
Þáeru það Bandaríkin! Ég ætla að prófa að elda eina uppskrift frá Suðurríkjunum og eina frá Norðurríkjunum. Suðurríkin fá að vera á undan og það kom ekkert annað til greina en að prófa Red beans & rice!
Red beans & rice er klassískur hversdagsmatur frá Louisiana. Þessi réttur var eldaður á mánudögum vegna þess að þá var þvottadagur. Baunirnar gátu mallað í pottinum tímunum saman á meðan húsmæðurnar þvoðu þvott. Svo var beinið úr sunnudagssteikinni líka sett út í réttinn.
Í hefðbundnum Red beans er sem sagt svínakjöt eða Andouille pylsur. Ég ákvað að prófa að nota bulsur í staðinn til að fá smá reykt bragð og það var mjög gott!
Þetta er réttur fyrir þá sem eeelska baunir og þá sérstaklega nýrnabaunir. Í klassískum Red beans eiga að vera mexíkóskar rauðar baunir, ekki nýrnabaunir. Nýrnabaunir eru grófari en þessar mexíkósku. Ég leitaði að þeim um alla borg en fann því miður ekki. Látið mig vita ef þið rekist á þær!
Innihaldsefni
- 250 gr. þurrkaðar nýrnabaunir *
- 600 ml. vatn (+ meira eftir þörfum)
- 3 sellerístilkar
- Græn paprika
- 2 - 3 hvítlauksrif
- 1 gulur laukur
- Lárviðarlauf
- 1 tsk chiliflögur
- ½ tsk óreganó
- ½ tsk paprikuduft
- ½ tsk timjan
- 1 tsk salt
- 1 tsk sykur
- Svartur pipar
- Olía til steikingar
- Tómatur
- Hrísgrjón
- Bulsur
- Vorlaukur
- Tabasco
- * Í upprunalega uppskriftinni eru mexíkóskar rauðar baunir en ekki nýrnabaunir.