Sómalía: Bariis Iskukaris

BARIIS ISKUKARIS

Frá Sómalíu

BARIIS ISKUKARIS

Frá Sómalíu

5/197


Image

Fimmtalandið er Sómalía og rétturinn er bariis iskukaris sem þýðir einfaldlega hrísgrjón með kryddum. Hefðbundin sómölsk kryddblanda inniheldur meðal annars kanil, cumin, kardimommur og rúsínur. Sómalskur matur er ekkert sérstaklega bragðsterkur einn og sér en hann er borinn fram með logandi sterkum chilisósum til hliðar.

Í Sómalíu þykir ómissandi að borða banana með svona hrísgrjónaréttum til þess að draga úr hitanum af chilisósunni. Ég hafði ekki tíma til að búa til hefðbundna sómalska chilisósu og lét mér nægja Tabasco en það er hægt að nota hvaða sterku chilisósu sem er. Rétturinn er venjulega borðaður með höndunum og það á að víst að vera banani með hverjum bita.

Þetta er góður og einfaldur réttur og bananinn kemur skemmtilega á óvart.

 

ALT="Somalian spice blend in mortar, 2 MB"

Image

Innihaldsefni

 

  • 1 bolli basmati hrísgrjón
  • 1¼ bolli vatn
  • 1 stór laukur
  • 2 tómatar
  • ½ kanilstöng
  • 3 kardemommubelgir
  • 1 tsk cuminfræ
  • 2 eða fleiri hvítlauksgeirar
  • ½ bolli smátt skorið hvítkál og gulrætur
  • 3 msk rúsínur
  • 2 msk olía
  • Salt eftir smekk

+ Banani og chilisósa að eigin vali

 

Image

Leiðbeiningar

 


1.
Byrjið á því að þvo hrísgrjónin og leggja í bleyti.

2.
Steikið hálfan lauk þar til hann verður karamellubrúnn.

3.
Merjið kryddin í mortéli og bætið á pönnuna ásamt hvítlauknum.

4.
Bætið smátt skornum tómötum á pönnuna og bíðið þar til sósan þykknar.

5.
Steikið grænmetið þar til það er hálftilbúið.

6.
Hellið vatninu af hrísgrjónunum og bætið út á pönnuna ásamt 1¼ bolla af vatni.

7.
Saltið eftir smekk.

8.
Setjið lok á pönnuna og leyfið þessu að krauma þar til allt vatnið er gufað upp og hrísgrjónin tilbúin. (Ef þið eigið ekki pönnu með loki þá er hægt að setja álpappír yfir og loka vel fyrir).

9.
Hitið msk af olíu á pönnu og steikið hinn helminginn af lauknum þar til hann karmelíserast og bætið svo rúsínunum út á og steikið þar til þær blása út.

10.
Bætið lauk- og rúsínublöndinni á réttinn.

Berið fram með bananasneiðum, sterkri chilisósu og ferskum grænum chilipipar.

Fyrir 2